FRÍR FYRIRLESTUR FYRIR VERÐANDI FORELDRA SEM VILJA UPPLIFA
RÓ OG TRAUST Í FÆÐINGU
Undirbúðu huga og taugakerfi,
svo ró og traust verði aðgengilegra þegar mest á reynir í fæðingu
Ég sýni þér hvernig þú byggir upp innra öryggi og ró, svo þú getir mætt fæðingunni tengd sjálfri þér, sama hvernig hún þróast.
Þú færð aðgang um leið og þú skráir þig. Horfðu þegar þér hentar.
Kannski kannast þú við þetta
Hluti af þér hlakkar til. Þú ert loksins að fara að hitta barnið þitt.
Á sama tíma er annar hluti sem finnur fyrir kvíða eða óvissu, eins og þú hafir enga stjórn á því sem bíður þín.
„Hvernig verður þetta?“
„Mun ég ráða við öldurnar?“
„Hvað ef þetta verður eins og síðast, eða erfiðara?“
„Hvað ef ég missi stjórn?“
Það er eðlilegt að finna fyrir þessu. Það er eðlilegt að hræðast verki og finnast óvissan óþægileg.
Þegar við skoðum þetta nánar er þetta yfirleitt spurning um traust.
Traust á sjálfri þér og líkamanum þínum. Traust á því að þú getir farið í gegnum þetta og gengið stolt frá reynslunni. Traust á því að þú týnir ekki sjálfri þér í ferlinu. Það er nákvæmlega það sem við vinnum með á fyrirlestrinum.
Það er mögulegt fyrir þig að…
Upplifa fæðingu sem rólega, fallega og valdeflandi reynslu.
Finna innri styrk og traust á líkamanum þínum.
Halda slökun í gegnum fæðinguna.
Upplifa minni sársauka og meiri stjórn.
Losa ótta og skapa tengingu við sjálfa þig og barnið þitt.
Það er mögulegt fyrir þig að fæðingin verði falleg upplifun.
Undirbúningurinn sem þú ferð í núna getur breytt öllu.
Það sem þú lærir
Þrjú lykilatriði í andlegum undirbúningi
Saman mynda þau grunninn að rólegu taugakerfi og fæðingu sem fær að flæða óhindrað.
Slökun
Fæðingin verður auðveldari þegar hugur og líkami upplifa öryggi og ró. Þú lærir af hverju slökun skiptir svona miklu máli fyrir fæðingarhormónin, og af hverju það er eðlilegt að eiga erfitt með að slaka á.
Innri styrkur
Það sem býr í undirmeðvitundinni hefur áhrif á taugakerfið í fæðingu. Þú lærir af hverju þekking ein og sér dugar yfirleitt ekki, og hvernig hægt er að byggja upp trúarkerfi sem styðja við öryggi.
Í flæði með líkamanum
Líkaminn kann að fæða og barnið kann að fæðast. Hugurinn þarf að leyfa. Þú lærir hvað líkaminn gerir algjörlega ósjálfrátt, og hvernig þú getur stutt við það ferli.
💕 Hittu fyrirlesarann
Hæ, ég er Hafdís
Ljósmóðir · Hypnobirthing-kennari · Móðir fjögurra barna · Svefnráðgjafi barna
Þegar ég eignaðist mitt fyrsta barn var ég sjálf orðin ljósmóðir og hélt að ég væri vel undirbúin. Fæðingin gekk vel á pappírum, en mér leið ekki vel í henni. Sama gerðist í þeirri næstu. Ég var upplýst, en ég var ekki andlega tilbúin.
Þegar ég gekk með tvíbura vissi ég að ég þyrfti að gera hlutina öðruvísi. Ég undirbjó hugann eins vel og líkamann. Sú fæðing varð allt önnur upplifun. Ég var róleg, tengd og fann innri styrk sem ég vissi að ég ætti til.
Í dag hjálpa ég verðandi foreldrum að undirbúa sig á dýpra leveli, svo þau geti mætt fæðingunni með ró, tengingu og trausti á eigin getu. Því hvernig þú upplifir fæðinguna er það sem þú tekur með þér heim.
Hvað segja konur sem ég hef unnið með?
Þeirra reynsla
Stórt takk fyrir að undirbúa mig svona vel fyrir magnaðasta móment og upplifun lífs míns 🥰 Í raun trúi ég þessu ekki ennþá, að þetta sé búið? En sturlað var það! TAKK ❤️
Kristín María
Kom mér á óvart hvað prógrammið hafði virkilega jákvæð áhrif á hugarfar og trú á eigin getu. Fann svo sterkt að ég gæti treyst líkamanum, barninu og þessu náttúrulega ferli. Fór nánast áhyggjulaus inn í fæðinguna.
Halldóra
Algengar spurningar
Hvað kostar fyrirlesturinn?
Hvenær get ég horft?
Ég er búin að fara á fæðingarnámskeið. Er þetta öðruvísi?
Hvenær á meðgöngunni hentar fyrirlesturinn?
Hentar þetta þó ég viti ekki hvar eða hvernig ég vil fæða?
Þetta nær dýpra
Þú veist örugglega að…
Andlegur og líkamlegur undirbúningur fyrir fæðingu hefur jákvæð áhrif á þig og barnið þitt. En hann nær dýpra. Hann gefur þér tækifæri til að…
Tengjast frumkrafti lífsins
Að muna að líkami þinn veit leiðina. Þú mátt slaka á og leyfa honum að leiða þig í gegnum fæðinguna.
Upplifa fæðinguna andlega tengd
Þetta er andleg upplifun þar sem þú mætir eigin styrk, fegurð og mýkt.
Finna sjálfa þig í öryggi og krafti
Að losa þig við ótta og spennu, finna frið í líkamanum og treysta því sem er þegar til staðar innra með þér.
Að bæta svefn barnsins þíns getur breytt lífi þínu
Líður þér eins og þú sért að lifa af daginn í stað þes að njóta hans?
Horfiru á aðra foreldra og hugsar af hverju allt er erfiðara hjá þér?
Ef svo er, get ég hjálpað þér að gera breytingar
- Það er mögulegt fyrir þig að njóta foreldrahlutverksins
- Það er mögulegt fyrir þig að fá tíma fyrir sjálfan þig
- Það er mögulegt fyrir þig að eiga gæðastundir með maka þínum
- Það er mögulegt fyrir barnið þitt að vera úthvílt og glatt
- Það er mögulegt að dagurinn verði auðveldari
Góður og fyrirsjáanlegur svefn mun gera það fyrir þig.
Gefðu mér 60 mínútur og ég gef þér:
Þrjú lykilatriði til að hjálpa barninu þínu að sofa alla nóttina, svo þið getið sofið óslitnum nætursvefni.
Hvernig dagrútínan styður við góðan nætursvefn.