LOKSINS, MANNÚÐLEGAR SVEFNLAUSNIR SEM VIRKA

Ímyndaðu þér að vakna úthvíld, endurnærð og tilbúin að takast á við daginn
 

Öðlastu þá þekkingu sem þú þarft til að hjálpa barninu þínu að sofa vel, án þess að fórna þínum gildum í foreldrahlutverkinu, svo að þú getir:

✔️ Upplifað sjálfstraust varðandi svefninn

✔️ Fengið þína andlegu og líkamlegu orku til baka

✔️ Notið lífsins án þess að þreytubugunin aftri þér.

Já takk! Ég er með

Hljómar þetta eins og þú?

 

 Þú manst ekki hvenær þú svafst síðast heila nótt.

✗ Þú þráir að fá kvöldin þín aftur, svo þú getir átt smá tíma fyrir þig og sambandið.

✗ Þú eyðir öllum deginum í að reyna að svæfa barnið, en samt sefur það ekki.

Þreytu bugunin veldur því að þú átt erfitt með að njóta dagsins. 

✗ Þér líður eins og þú sért búin að reyna allt, en ekkert virkar til að fá barnið til að sofa. 

✗ Þú eyðir klukkutímum saman í að lesa misvísandi upplýsingar og ráð, bara til að verða enn ringlaðari. 

Margir foreldrar vona að svefninn lagist bara af sjálfu sér

Stundum gerist það. En ef þú finnur að sama mynstrið heldur áfram, þá er það yfirleitt merki um að barnið þurfi aðeins skýrari ramma og stuðning til að geta farið að sofa vel.

Aðrir festast í hringrás:

  • Random ráð af samfélagsmiðlum
  • Tilfinningalegar ákvarðanir í þreytu
  • Lausnir sem miða að því að lifa af, ekki byggja upp

Í minni nálgun meðhöndlum við ekki bara einkenni, heldur vinnum með undirliggjandi orsök vandans, og byggjum skref fyrir skref upp aðstæður og hæfni fyrir góðan svefn. 

Hugsaðu um þetta eins og garðrækt.

Þú getur ekki öskrað á blóm að vaxa. Þú býrð til aðstæður sem gera vöxt óumflýjanlegan.

 

Við erum að breyta því hvernig þú horfir á svefn barnsins.

  • Þú ferð frá því að kenna sjálfri þér eða barninu um, yfir í að skilja líffræðileg kerfi svefns.
  • Frá óreiðukenndum viðbrögðum, yfir í markvissan stuðning.
  • Frá annað hvort eða hugsun, yfir í bæði og nálgun, þar sem tenging og sjálfstæður svefn fara saman.

Ímyndaðu þér að reyna að byggja hús með því að byrja á þakinu


Hljómar fáránlega, ekki satt? Samt er þetta nákvæmlega þannig sem margir foreldrar nálgast svefnvanda barnsins síns, kasta mismunandi ráðum í vandann og vona að eitthvað virki.

En hvað ef þú gætir byggt svefninn upp frá grunni?

Með gagnreyndu, skref-fyrir-skref kerfi sem breytir því hvernig þú skilur og styður við svefn barnsins þíns.

Hvað af þessu myndi breyta mestu fyrir þig: 

 

Barnið þitt sofnar auðveldlega og þú færð loksins kvöldin þín aftur.

 Þú vaknar úthvíld á morgnanna og getur verið það foreldri sem þú vilt vera.

✓ Barnið er í fyrirsjáanlegri rútínu sem virkar fyrir það og þig.

Ef þetta hljómar vel ertu á réttum stað!

VELKOMIN Í

VIRÐINGARRÍKAR SVEFNLAUSNIR ER HANNAÐ TIL AÐ FÆRA FJÖLSKYLDUR ÚR ÓVISSU OG SVEFNLEYSISÞROTI YFIR Í SJÁLFSTRAUST OG STÖÐUGLEIKA Í SVEFNI BARNA SINNA.

Þetta er ítarlegt netnámskeið sem hjálpar foreldrum að leysa svefnvanda barnsins síns án þess að skilja það eftir eitt og óstutt. Með því að nýta þér líffræði svefns og hagnýtar, virðingarríkar leiðir færðu skýra sýn á hvernig þú getur skapað fyrirsjáanlegar nætur og dagrútínu sem styður bæði barnið og þig sem foreldri.

Lærðu 4 skrefa kerfið sem leiðir þig í að byggja upp heilbrigðan grunn, dagrútínu miðað við aldur, sjálfstæðan svefn og samfelldar nætur.

Notaðu hagnýt verkfæri eins og prentanlegar dagrútínur, tékklista og leiðbeiningar sem hjálpa þér að breyta þekkingu í skýr skref.

Farðu í gegnum bakslög og stórar breytingar með sérhæfðum verkfærum og bónusfyrirlestrum svo árangurinn haldist til lengri tíma.

Fylgdu virðingarríkri og líffræðilega raunhæfri nálgun sem verndar tengslin ykkar á milli á sama tíma og hún styður við sjálfstæðan og endurnærandi svefn.

Þetta er vegvísirinn þinn frá svefnlausum nóttum og pirringi yfir í samfelldan og endurnærandi svefn sem getur umbreytt lífi fjölskyldunnar.

Já takk! Byrja núna

 

Af hverju talar fólk svona vel um Virðingarríkar Svefnlausnir?

 

 

“Það eykur bara tengslin að sofa báðar betur”

“Hún sofnar oftast sjálf í eigin rúmi, ekki á brjósti sem þýðir aukið frelsi því nú getur hver sem er svæft. Daglúrar hafa lengst, meiri ró yfir barni og mömmu, betri tengsl og mamman upplifir meiri stjórn á öllu og vanmættið mun minna. 

Hún sefur betur og svo margt sem ég skil betur, tímasetningar á vöku og annað. Hélt að það yrði erfiðara fyrir okkur að sofa aðskildar en það eykur bara tengslin að sofa báðar betur.”

- Mamma 7 mánaða

Það þurfti bara rétta leið fyrir hana.

Við höfðum litla trú á að 7 mánaða dóttir okkar myndi geta sofið í sínu rúmi og inn í sínu herbergi eftir margar tilraunir. En eftir að við notuðum svefnaðferð sem hentar hennar skapgerð og hvernig aðstæður voru fyrir að þá tók það ekki nema nokkrar nætur. Nú sefur hún í sínu herbergi og sofnar sjálf á kvöldin. Mæli með fyrir alla þreytta foreldra sem vilja styðja við barnið sitt við að sofa betur.

- Mamma 7 mánaða

Hér er það sem bíður þín inni í
Virðingarríkum Svefnlausnum

1

Skref: Svefnhvetjandi Venjur - Byggjum grunninn

Áður en þú tekst á við næturvaknanir þarftu traustan grunn sem gerir samfelldan svefn mögulegan. Í þessum hluta lærir þú hvernig þú býrð til frábært svefnumhverfi sem styður við lengri og dýpri svefn. Við ræðum vökuglugga, þreytumerki, dægursveiflu og rútínu fyrir svefninn, svo þú getir loksins kvatt ágiskanir. Þetta skref snýst um að búa þannig um hnútana að 11–12 tíma nætursvefn verði mögulegur.

Í ÞESSU SKREFI UPPGÖTVAR ÞÚ:
  • Hvernig þú býrð til svefnumhverfi sem styður djúpan og endurnærandi svefn.
  • Sannreynda formúlu að rútínu fyrir svefninn sem minnkar mótstöðu og bætir svefngæði.
  • Hvernig þú þekkir þreytumerki barnsins þíns og hvort þreytumerki eða vökugluggar séu málið.
  • Hvernig þú styrkir dægursveiflu barnsins svo svefninn verði auðveldari og náttúrulegri
  • Af hverju svefnþjálfun getur mistekst án þessa grunns og hvernig þú forðast algeng mistök til að ná varanlegum árangri

2

Skref: Náðu tökum á lúrum og daglegri rútínu

Bless óreiða, ófyrirsjáanleiki og átök. Í þessu skrefi færðu leiðbeiningar eftir aldri um lúra og rútínu sem geta umbreytt dögunum ykkar og lagt grunninn að 11–12 tíma nætursvefni.

Þú færð skýra sýn á hvenær og hversu lengi er heppilegt fyrir barnið þitt að sofa á daginn, af hverju lúrarnir hafa meiri áhrif á nætursvefninn en flestir gera sér grein fyrir, og hvernig þú getur aðlagað rútínuna af öryggi eftir því sem barnið eldist.

Í ÞESSU SKREFI UPPGÖTVAR ÞÚ:
  • Tenginguna á milli lúra og lengri, dýpri nætursvefns, hvernig dagsvefninn getur annaðhvort styrkt eða haft slæm áhrif á nætursvefninn
  • Vísindin á bak við svefnþrýsting og hvernig þú kemur í veg fyrir of -eða undirþreytu 
  • Aldursmiðaðar rútínur með einföldum dæmum og prentanlegum leiðbeiningum frá 4 til 24 mánaða
  • Hvernig þú styttir eða hættir lúrum, eftir því sem barnið eldist
  • Ráð við stuttum lúrum, allt frá breytingum á svefnumhverfi til þess að greina hvenær líkamlegir þættir gætu haft áhrif
  • Skýra stefnu til að forgangsraða rétt milli dag og nætursvefns, hvenær er betra að byrja á lúrum og hvenær á nóttinni
  • Hvernig þú heldur í sveigjanlega en stöðuga dagrútínu sem styður bæði barnið og fjölskylduna, hádegislúrinn sem akkeri, frelsi í kringum hina

3

Skref: Svefntengingar / hvernig barnið sofnar

Í þessu skrefi afhjúpum við þær svefntengingar sem barnið þitt þarf til að sofna og haldast sofandi, og sýnum þér hvernig þú getur á virðingarríkan hátt breytt þeim svo barnið geti tengt svefnhringi án stöðugrar aðkomu foreldra.

Í ÞESSU SKREFI UPPGÖTVAR ÞÚ:
  • Hvað svefntengingar eru og af hverju þær eru hvorki góðar né slæmar, heldur bara öflugir svefnhvatar
  • Hvernig það hvernig barnið þitt sofnar í upphafi getur haft bein áhrif á getu þess til að tengja svefnhringi án þinnar aðstoðar
  • Algengustu svefntengingarnar sem krefjast aðkomu foreldra og hvernig þú greinir hvaða mynstur barnið þitt hefur
  • Hvernig þú getur skipt út svefntengingum í stað þess að taka þær í burtu, þannig verða breytingarnar árangursríkari
  • Hvernig þú getur kynnt huggunardýr á öruggan hátt til að styðja sjálfstæðan svefn
  • Sannleikann um snuð sem svefntengingu, hvenær er skynsamlegt að halda því, kenna sjálfstæði með það eða hætta notkun þess

4

Skref: Svefnstuðningur - Leiðbeindu barninu þitt í átt að sjálfstæðum svefni og samfelldum nætursvefni

Í þessu skrefi lærir þú hvernig þú getur stutt barnið þitt í að ná tökum á sjálfstæðum svefni og lengri, samfelldum nætursvefni, með aðferðum sem taka mið af skapgerð barnsins þíns, þínum gildum í foreldrahlutverkinu og raunhæfum líffræðilegum forsendum.

Skýrt, skref-fyrir-skref plan til að bregðast við næturvöknunum, fækka næturgjöfum á viðeigandi hátt og leiða ferlið með ró og sjálfstrausti, jafnvel þegar það reynir á.

Í ÞESSU SKREFI UPPGÖTVAR ÞÚ:
  • Hvernig þú velur svefnstuðnings aðferð sem hentar skapgerð barnsins þíns og þinni fjölskyldu, allt frá Venjum staflað yfir í Svæft með rými
  • Lykilinn að því að bregðast við næturvöknunum, svo barnið læri að tengja svefnhringi
  • Hvenær og hvernig þú getur fækkað eða tekið út næturgjafir út frá aldri og líffræðilegum þörfum, þar á meðal hvernig þú snýrð við „öfugu mynstri“ þar sem meirihluti hitaeininga fer inn á næturnar
  • Hvers vegna hugarfar þitt og tilfinningastjórnun skipta sköpum og hvernig þú heldur stöðugleika og ró jafnvel þegar svefninn virðist ómögulegur
  • Við hverju má búast í ferlinu, hvers vegna svefninn verður oft erfiðari áður en hann lagast og hvernig þú tekst á við erfiðustu dagana án þess að missa vonina
  • Raunhæf leið að 11–12 klukkustunda samfelldum nætursvefni (þegar barnið er tilbúið), af öryggi, samkennd og sjálfstrausti

Bónus kafli:

Algeng svefnvandamál, greindu og leystu tíðar næturvaknanir og snemmvaknanir af sjálfstrausti

Í þessu bónus kafla lærir þú að greina raunverulega ástæðu á bak við svefnvanda barnsins þíns, hvort sem það eru næturgjafir, svefntengingar, líkamleg óþægindi eða þroskastökk og færð skýrt, skref-fyrir-skref plan til að leysa vandann.

 

Í þessum kafla uppgötvar þú:

  • 8 algengustu ástæður næturvaknana og snemmvaknana
  • Hvernig þú túlkar mynstur í vöknunum til að finna rót vandans
  • Hagnýt útilokunaraðferð til að prófa breytingar á árangursríkan hátt og vita nákvæmlega hvað á að laga og hvenær
  • Árangursríkar leiðir til að takast á við snemmvaknanir svo þær festist ekki í sessi, þar á meðal skref-fyrir-skref aðferð til að færa vökunar tímann smám saman aftar
  • Lykilinn að því að nota svefnþjálfa klukku rétt og hvers vegna stöðugleiki er þitt sterkasta vopn

 

Hvaða árangur eru foreldrar að sjá?

„Ég græt af gleði þegar ég hugsa um þetta“

“Barnið mitt vaknaði mjög oft á nóttunni og þurfti að drekka til að sofna. Þetta námskeið gjörbreytti svefni barnsins míns til hins betra og ég náði loksins að sofa lengur á nóttunni. Maður fær góða aðstoð og margar mismunandi aðferðir í boði. Það er ekki verið að láta barnið gráta sig í svefn heldur hjálpað því með ást og umhyggju.

- Mamma 5 mánaða

„Ég er orðin ný manneskja“

“Hann var að vakna á 45-60 mín fresti og náði að tengja svefnhringi tveimur vikum eftir að ég byrjaði. Ég er ný manneskja eftir að ég fór að geta sofið á nóttunni. Ég er líka enn öruggari með sjálfa mig í mínu hlutverki. Mikill stuðningur, frábærir fyrirlestrar og svo gott að heyra hvað aðrir eru að kljást við.”

- Mamma 7 mánaða

 
Okey nú ertu kannski farin að hugsa:
„Þetta hljómar rosa vel…. En hvað kostar þetta?“

 

Ég skil það vel.  En áður en við tölum um verð, langar mig að útskýra af hverju þetta er ekki bara enn eitt námskeiðið á netinu, heldur raunverulegur vendipunktur fyrir þreytta foreldra.

Hugsaðu um síðasta móment þegar þú tókst stóra ákvörðun. Eitthvað sem skipti þig máli. Þegar eitthvað er nógu mikilvægt, þá snýst ákvörðunin ekki bara um verðið heldur um breytinguna sem það getur skapað.

Ef þú myndir ráða svefnráðgjafa í dag, þá værir þú að horfa á tugi ef ekki hundruði þúsunda fyrir persónulega ráðgjöf ásamt eftirfylgni. 

Mig langar hins vegar að gera þessa umbreytingu aðgengilega.

 

Ég hef verið að þróa þetta prógram síðstu ár, byggt á minni menntun sem hjúkrunarfræðingur og ljósmóðir, ásamt reynslu af því að styðja þúsundir fjölskyldna. Þetta er faglega unnin, lífeðlisfræðilega studd og tengslamiðuð nálgun sem hjálpar fjölskyldum að endurheimta svefninn og róna á heimilinu.

Þín fjárfesting er 24.900 kr.

Fyrir það færðu heildstætt prógram sem skilar þeirri umbreytingu sem annars gæti kostað margfalt meira í einkaráðgjöf.

 

Þú ert ekki að fjárfesta í myndböndum á netinu.

Þú ert að fjárfesta í því að:

  • Endurheimta svefninn
  • Fá kvöldin aftur
  • Minni streitu og kvíða
  • Hætta að efast um sjálfan þig
  • Verða róleg og örugg í foreldrahlutverkinu

Þegar þú setur þetta í samhengi er 24.900 kr fjárfesting minni en:

  • Nokkrar vikur af góðu kaffi til að halda þér gangandi
  • Ein nótt á hóteli til að geta fengið eina góða nótt
  • Kostnaðurinn sem fylgir langvarandi svefnleysi, andlega og líkamlega

Þetta prógram er rammi sem þú getur notað aftur og aftur. Í bakslögum. Í breytingum. Eftir því sem barnið eldist.

Þetta er fjárfesting í vellíðan fjölskyldunnar og ávinningurinn margfaldast yfir árin.

Eingreiðsla: 24.900 kr.

Engar áskriftir. Engar afborganir.

Já takk, ég vil byrja núna
 

Til að auðvelda þér lífið enn frekar er með auka gjafir handa þér

Að fara í gegnum námskeiðið og fylgja skrefunum getur umbreytt svefninum heima hjá þér.

En við vitum bæði að lífið er ekki línulegt.

Það koma bakslög. Rútínan fer í rugl. Barnið veikist. Þroskastökk.

Þess vegna er ég með nokkra bónusa handa þér sem styðja þig þegar lífið er að lífast.

Við byrjum á…

Bónus #1

Tékklisti fyrir góðan svefn: Fljótlegt greiningartól fyrir svefninn

Virði: 19.900 kr.

Finnst þér stundum eins og þú sért að reyna að leysa púsluspil í myrkri?

Þetta er tékklisti, hannaður til að gefa þér skýrleika á þessum pirrandi „hvað er málið“ augnablikum. Þegar þig vantar bara atriði til að fara í gegnum til að sjá hvað málið gæti veirð.

Þetta er þín skýra yfirsýn til að finna nákvæmlega hvað þarf að stilla af.

  • Heildræn svefngreining á einu blaði
  • Fljótlegt og einfalt í notkun
  • Nær yfir alla lykilþætti góðs svefns
  • Kemur í veg fyrir óþarfa „ofleiðréttingar“
  • Eykur sjálfstraust og skýrleika 

Þessi bónus getur breytt yfirþyrmandi áskorunum í skýra og framkvæmanlega aðgerðaráætlun.

Eins og að hafa svefnsérfræðing við hliðina á þér sem hjálpar þér að gera nákvæmar og markvissar breytingar.

Virði: 19.900 kr.

Bónus #2

Stórar breytingar í svefnumhverfi gerðar einfaldar

Hræðsla margra foreldra...
Að ein lítil breyting muni rústa öllum þeim framförum í svefninum sem þið hafið unnið svo hart að.

Þetta er þitt öryggisnet, hvort sem þú ert að færa barnið úr vöggu í rimlarúm, undirbúa leikskólabyrjun eða skipta yfir í opið barnarúm, þá hefurðu plan sem heldur svefninum sem stöðugustum.

Í þessum bónus færðu:

  • Heildstæðan leiðarvísi fyrir allar helstu breytingar í svefnumhverfi barnsins
  • Aðferðir til að undirbúa barnið svo rútínan haldist stöðug
  • Leiðbeiningar um tímasetningar, hvenær er rétti tíminn og hvenær er betra að bíða
  • Sérstakar leiðir fyrir smábörn þegar kemur að opnu rúmi
  • Leikskólabyrjun, hvernig þú verndar næturnar þó dagarnir breytist

Þessi bónus breytir mögulegum áskorunum í fyrirsjáanlegt og viðráðanlegt ferli.

Bónus #3

Leiðarvísir í gegnum bakslög í svefninum

Virði: 19.900 kr.

Hér kemur að martröð margra foreldra: að horfa á svefninn, sem þið hafið lagt svo mikla vinnu í að byggja upp, hrynja á einni nóttu.

En hvað ef bakslög eru ekki hörmung heldur fyrirsjáanlegur og viðráðanlegur hluti af þroska barnsins?

Þessi bónus er þitt öryggisnet í gegnum bakslög. Hann getur breytt paniki í skýra sýn og hjálpað þér að mæta bakslögum af ró, yfirsýn og markvissum viðbrögðum.

Í þessum bónus færðu:

  • Skýra og aðgengilega greiningu á fjórum helstu tegundum svefnbakslaga
  • Aldursmiðuð leiðsögn frá 4 mánaða aldri upp í 2 ára
  • Markvissar aðferðir til að viðhalda svefnframförum í gegnum þroskastökk
  • Verkfæri sem styðja þig í að halda ró og stöðugleika þegar mest reynir á

Þessi bónus gefur þér leiðarvísinn sem þú þarft til að mæta svefnáskorunum af sjálfstrausti og breytir mögulegum afturförum í tækifæri til skilnings, tengingar og öryggis.

Virði: 9.900 kr.

Bónus #4

Dæmi um dagrútínu fyrir góðan svefn upp að 5 ára aldri

Þessar tilbúnu dagrútínur eru sveigjanlegur leiðarvísir sem vex með barninu þínu og sýnir þér nákvæmlega hvernig dagurinn getur litið út frá 4 mánaða aldri og upp í 5 ára.

Í þessum bónus færðu:

  • Prentanleg dæmi um dagrútínur fyrir hvert þroskastig
  • Sveigjanlegan ramma sem hentar raunverulegu fjölskyldulífi
  • Innbyggða leiðsögn um hvernig má greina og laga vandamál eftir aldri
  • Skýra yfirsýn yfir vökuglugga og tímasetningu lúra
  • Langtímasýn sem hjálpar þér að undirbúa næstu breytingar

Bless endalausar Google-leitir og efi.
Þetta er eins og að hafa svefnsérfræðing sem hvíslar að þér hvað á að gera, hvenær á að gera það og hvernig þú aðlagar daginn að þínu barni.

Bónus #5

Næring sem styður við góðan svefn

Virði: 9.900 kr.

Í þessum bónus færðu ítarlegan fyrirlestur frá næringarfræðingi sem sérhæfir sig í næringu ungbarna, þar sem bilið er brúað á milli þess sem barnið borðar og þess hvernig það sefur. 

Þetta er innsýn í hvernig næring hefur bein áhrif á svefninn. 

  • Fyrirlestur leiddur af sérfræðingi í næringu ungbarna
  • Tengsl næringar og svefns
  • Greining á næringarskorti sem getur haft áhrif á svefn
  • Hagnýtar leiðir til að byggja upp máltíðir sem styðja við betri nætursvefn
  • Gagnreynd ráð til að hámarka næringu barnsins fyrir djúpan svefn

 

Þessi bónus gefur þér innsýn sem gæti verið púsluspilið sem vantaði í svefnmyndina hjá ykkur.

Þitt verð: 24.900 kr.

Engar áskriftir. Engar afborganir.

Ég þarf þetta takk
 

 TÖKUM ÞETTA SAMAN!

Hér er allt sem þú færð þegar þú skráir þig  í dag:

  • Heildstæða 4 skrefa kerfið
    Ítarlegt sjálfsnám sem leiðir þig í gegnum að byggja upp heilbrigðar grunnstoðir, dagrútínu við hæfi miðað við aldur, sjálfstæðan svefn á virðingarríkan hátt og fækkun næturvaknana.
    (Virði: 49.900 kr)

ÞÚ FÆRÐ ÞESSA EINSTÖKU BÓNUSA
ALGJÖRLEGA FRÍTT MEÐ:

  • Tékklistar fyrir góðan svefn
    Fljótlegt greiningartæki sem hjálpar þér að koma auga á hvað þarf að laga.
    (Virði: 19.900 kr.)
  • Stórar breytingar í svefnumhverfinu gerðar auðveldar
    Skref-fyrir-skref leiðarvísir í að takast á við helstu breytingar án þess að missa árangur.
    (Virði: 19.900 kr.)
  • Leiðarvísir í gegnum bakslög í svefninum
    Markviss leið til að skilja og vinna sig í gegnum svefnbakslög frá 4 mánaða til 2+ ára.
    (Virði: 19.900 kr.)
  • Dæmi um dagrútínu fyrir góðan svefn upp að 5 ára aldri
    Prentanleg og sveigjanleg dæmi sem taka út getgátur um svefnþarfir barnsins.
    (Virði: 9.900 kr.)
  • Næring sem styður við góðan svefn
    Sérfræðifyrirlestur um hvernig næring hefur áhrif á svefn og hvað ber að hafa í huga.
    (Virði: 9.900 kr.)

 

Þú getur byrjað í dag fyrir aðeins 24.900 kr. og fengið strax aðgang að þessu öllu, sem getur umbreytt svefni fjölskyldunnar.

Smelltu hér og byrjaðu í dag.
 

Hvaða árangur eru foreldrar að sjá?

Þetta var allt gert með góðri samvisku

“Við settum hann strax í dagrútínuna samkvæmt plani. Mér fannst það skipta miklu máli og tel ég að það hafi átt stóran þátt í þessu.

…allt ferlið við þetta var svo þægilegt og ánægjulegt, það var gaman að fagna litlu sigrunum á leiðinni og allt þetta var gert með góðri samvisku og án mikils gráturs… allt eitthvað svo eðlilegt með góðum leiðbeiningum… nú sofnar hann alveg sjálfur og sefur alla nóttina… og ég bara hætti ekki að dásama þetta námskeið”

- Mamma 10 mánaða

Ég var komin í þrot af svefnleysi

Hún var ekki í neinni rútínu, fór seint að sofa og lúrar voru óreglulegir. Núna er svefninn orðin mun betri, hún fer að sofa á sama tíma öll kvöld og vaknar á sama tíma á morgnanna (+/- 15-30 mín), lúrar eru á sama tíma á daginn og orðnir lengri, voru alltaf 25-35 mín en núna eru þeir 1 klst + 1,5 klst.

Ég var eiginlega komin í þrot af svefnleysi en staðan er önnur núna. Ég er mun jákvæðari gagnvart svefntíma. Hann er ekki að valda kvíða lengur heldur eigum við notalega stund fyrir svefninn.

- Mamma 8 mánaða

Hver er Hafdís?

 

Fyrir nokkrum árum, í fæðingarorlofi með annað barnið mitt (Jón Sölva), var ég í sömu sporum og þú, svefnlaus, buguð og VARРað fara að finna út úr þessu. Hausinn á mér var orðin að einum grauti og ég var búin að missa gleðina. 

Ég eyddi vil-ekki-vita hve mörgum klukkustundum í að leita svara á netinu, bara til að verða enn ringlaðari um hvernig best væri að hjálpa honum að sofa betur. 

Svo kviknaði á peru í hausnum á mér! Ég ákvað að gerast svefnráðgjafi barna – ekki bara til að leysa svefnvanda minna eigin barna heldur líka til að veita öðrum foreldrum í sömu sporum sérfræðiráðgjöf byggða á vísindalegum grunni.

Með minn bakgrunn minn sem hjúkrunarfræðingur og ljósmóðir áttaði ég mig á að ég gæti nálgast svefn barna á heildrænan hátt og fundið varanlegar lausnir fyrir fjölskyldur.

Undanfarin 3 ár hef ég haft þann heiður að hjálpa yfir 3000 börnum að sofa betur.

Í dag er ég móðir fjögurra barna, og öll börnin mín sofa vel! Ég vakna úthvíld og hef lært að styðja við góðan svefn á þann hátt sem mér líður vel með – engar harkalegar aðferðir, bara virðingarríkar og mannúðlegar lausnir.

Börnin mín eru heilbrigð, hamingjusöm og með örugg tengsl. Við, sem foreldrar, erum úthvíld, heilbrigð og glöð.

Markmið mitt er að hjálpa þér að komast þangað – að fá góðan svefn fyrir þig og barnið þitt svo þú getir endurheimt sjálfan þig, tengst maka þínum og, það sem skiptir mestu máli, notið lífsins til fulls.

Þetta er KLÁRLEGA fyrir þig ef:

 

 Þú ert þreytt en vilt gera þetta á virðingaríkan hátt

 Þú vilt skilja af hverju svefninn er svona, ekki bara fá skipanir

Þú vilt lausnir sem taka mið af skapgerð barnsins þíns

Þú vilt fá kvöldin og næturnar aftur án þess að fórna tengslunum

Þú skilur að góður svefn byggist upp yfir tíma, ekki á einni töfralausn

Þetta er EKKI fyrir þig ef:

 

 Barnið þitt er vel yfir 2 ára eða vel undir 4 mánaða

Þú vilt stranga einhliða aðferð sem hentar öllum börnum 

Þú ert að leita að töfralausn sem virkar á einu kvöldi

Þú ert ekki tilbúin að breyta neinu í núverandi rútínu

Algengar spurningar