Fæðing í Flæði hjálpar þér að halda innri ró og tengingu við sjálfa þig þegar mest á reynir í fæðingu, svo þú getir mætt henni af trausti í stað ótta
Fyrir verðandi foreldra sem vilja ekki bara skilja fæðinguna með huganum, heldur æfa hvernig þau halda ró og trausti á líkamanum þegar mest á reynir.
Þú ert að fara að ganga inn í reynslu sem getur mótað hvernig þú upplifir sjálfa þig, líkama þinn og upphaf foreldrahlutverksins.
Mig langar að tala við þig af einlægni, sem manneskja sem skilur hversu stór þessi viðburður er.
Ein leiðin sem þú getur farið er að undirbúa þig lítið sem ekkert og vona það besta
Margir fara þessa klassísku íslensku leið: „Þetta reddast.“
Lesa sér til hér og þar, hlusta á sögur, reyna að vera jákvæð og ekki stressa sig of mikið.
En undir yfirborðinu kraumar oft þessi óvissa…
„Verður þetta allt í lagi?“
„Mun ég höndla þetta?“
„Hvað ef ég missi stjórn þegar á reynir?“
Þessi leið getur þýtt að:
- Óvissan fylgi þér hljóðlega
- Þú upplifir þig ekki tilbúna þegar fæðingin byrjar
- Fæðingin verður eitthvað sem gerist fyrir þig, frekar en að þú sért virkur þátttakandi
Hin leiðin er meðvitaður undirbúningur með fagaðila og samfélagi svo þú getir mætt fæðingunni af ró, trausti og tengingu við sjálfa þig.
Þegar þú ferð þessa leið:
- Þjálfaru taugakerfið í slökun áður en á reynir
- Byggiru upp traust sem þú finnur í líkamanum
- Hefurðu verkfæri sem þú getur notað þegar á reynir
- Upplifiru þig sem virkan þátttakanda í ferlinu
Þú ert ekki að undirbúa þig fyrir hina „fullkomnu fæðingu“.
Heldur finna sjálfa þig og þetta innra öryggi, þegar mest á reynir.
Fæðingin mun koma, hvort sem þú undirbýrð þig eða ekki.
Hver vika sem líður er tækifæri til að æfa ró, byggja upp traust og styrkja tengslin við líkama þinn og barnið þitt.
Fæðing í flæði er tækifæri til að undirbúa sig á djúpan hátt.
Með skýrleika og virðingu fyrir þér og þinni vegferð.
Það sem oft gleymist
Þú ert kannski spennt og þakklát. En samt er einhver hnútur í maganum.
Kannski ertu búin að lesa, hlusta, spyrja.
Kannski finnst þér þú róleg en hugurinn fer á flug á kvöldin.
„Ég vil eiga góða fæðingu… en veit ég hvað til þarf?“
Ég skil þessar tilfinningar svo vel, því ég var sjálf á þessum stað, þrátt fyrir að vera orðin ljósmóðir.
Vandamálið er að flestur undirbúningur vinnur með meðvitaða hluta heilans en fæðing gerist í líkamanum og ósjálfráða taugakerfinu.
Þú getur vitað allt um fæðingar, en ef taugakerfið finnur ekki fyrir öryggi, þá spennistu ósjálfrátt upp og óttinn getur tekið yfir þegar á reynir
Og það er mögulega það sem þú ert hrædd við...
Að frjósa. Að missa stjórnina. Að týna röddinni þína. Að glata sjálfri þér.
Af því að þér var aldrei kennt að skapa innra öryggi.
Fæðing í flæði er ólíkt hefðbundinni fæðingarfræðslu. Þetta er vinna sem fer einu leveli dýpra og hjálpar líkamanum að upplifa öryggi og flæði.
Ímyndaðu þér að þú standir við sjávarmálið og horfir á öldurnar skella á ströndinni.
Margar konur reyna að byggja vegg gegn öldunum, að berjast, stjórna og standast.
En hvað ef þú gætir í staðinn lært að fljóta, anda og hreyfast með krafti hafsins?
Hvað ef fæðing væri eitthvað sem þú mætir af öryggi og ró?
Velkomin í
Fæðing í flæði er 4 vikna netnámskeið og stuðningur í rauntíma, hannað til að þjálfa taugakerfið þitt og umbreyta hugarfarinu, svo þú getir farið úr kvíða og efasemdum yfir í traust á þér og líkamanum þínum fyrir fæðinguna þína.
Þú lærir og æfir verkfæri sem hjálpa þér að vinna með líkamanum, finna aftur ró þegar ákefðin eykst og mæta því sem kemur af meira öryggi og trausti.
Þú hefur aðgang að öllu efninu í 1 ár, svo að þú getur farið í gegnum þetta á þínum hraða.
Þú þarft ekki að bæta löngum verkefnalista við meðgönguna því að stuttar, reglulegar æfingar skipta mestu máli.
Þetta prógram er heildstæð leiðsögn í því að finna ró og skýrleika þegar á reynir, svo þú mætir fæðingunni með tengingu og innri styrk, sama hvernig hún þróast.
Já takk, þetta er fyrir migÞetta færðu þegar þú skráir þig í Fæðing í flæði:
Megin kjarni Fæðing í Flæði: 4 vikna netnámskeið
Vikulegt efni sem þú vinnur með á eigin hraða á þeim tíma sem þér hentar (Myndbönd, vinnubækur, pdf skjöl, öndun, hugleiðslur, dáleiðslur, æfingar), svo þú vitir nákvæmlega hvernig þú vinnur með hverri öldu. Aðgangur að öllu efni í 12 mánuði.
Öndunar og slökunar verkfærakistan
Aðgangur og þjálfun í þremur öndunar aðferðum, ásamt hugleiðslu/slökunar og dáleiðslu safni til að nota á meðgöngunni og í fæðingunni. Sett upp í dagatal svo þú vitir hvað þú getir gert á hverjum degi.
Umræðufundir eftir viku 2 og 4.
Þar sem við ræðum það sem liggur ykkur á hjarta ásamt því að anda og slaka saman.
Þú getur ekki stjórnað fæðingunni en þú getur stjórnað hvernig þér líður í henni
„Ég vissi að ég þyrfti að vinna með hugann fyrir þessa fæðingu, því síðasta fæðing mín var mjög hröð og krefjandi. Fæðing í Flæði hjálpaði mér að ná miklu meiri ró, bæði í daglega lífinu og núna í lok meðgöngu með tvö börn heima.
Ég er mun meðvitaðri um að æfa mig og hlusta á líkamann og ég finn að hugurinn er miklu slakari. Nú er ég bara orðin spennt fyrir fæðingunni! Ég veit að ég mun geta tekið því sem kemur, hvernig sem aðstæður verða.
Ég fékk góða þekkingu og upplýsingar, og mér finnst þetta svo valdeflandi, að vita hvernig ég get skapað bestu mögulegu stjórn og líðan í krefjandi aðstæðum. Fyrir mig er hugurinn stærsta tólið í fæðingu, hann er næstum það eina sem við getum stjórnað í þessum aðstæðum og þegar hugurinn er rólegur og á góðum stað, þá kemur líkaminn líka með.“
- Melkorka Rut
Hér er það sem bíður þín inni í Fæðing í flæði þegar þú gerist meðlimur.
Vika 1
OPNAÐU á þinn innri styrk og skapaðu jákvæða sýn á fæðingu
Færðu þig frá ótta og efasemdum yfir í óstöðvandi sjálfstraust
Ef þú hefur fundið fyrir hnút í maganum eða efasemdum í tengslum við fæðinguna, þá ert þú ekki ein. Þessi tilfinning spáir ekki fyrir um framtíðina, heldur er þetta forrit sem er í gangi í undirmeðvitundinni. Í viku 1 færðu dýpri skilning á því hvernig hugurinn virkar og tæki og tól til að skapa jákvæða sýn á fæðingu.
Í viku 1 uppgötvaru:
- Ísjaka-líkingin í fæðingu: Skildu muninn á meðvitund og undirmeðvitund og hvernig þú getur sett inn jákvæð skilaboð sem styðja þig í fæðingunni.
- Stóra sýnin: Skref-fyrir-skref ferli til að skapa lifandi og skýra mynd af draumafæðingunni þinni, svo sannfærandi að hugurinn byrjar strax að vinna að því að gera hana að veruleika.
- Hamlandi viðhorf: Skoðaðu hamlandi viðhorf og sögur sem halda aftur af þér og lærðu verkfæri til að móta ný, valdeflandi viðhorf sem styðja þína drauma fæðingu.
Vika 2
Masteraðu lífeðlisfræði flæðis í fæðingu, líkaminn er gerður fyrir þetta
Lærðu að styðja við hormóna- og taugakerfið fyrir auðveldari fæðingu
Hættu að spyrja: „Hvað ef líkaminn minn getur þetta ekki?“ og byrjaðu að treysta hinni fornu visku sem býr innra með þér. Í þessari viku skoðum við lífeðlisfræðina á bak við fæðingu, sem gefur þér djúpan skilning á því sem er að gerast í líkamanum. Þú lærir að styðja við fæðingarhormónin, svo að allt verði löðrandi í oxýtósíni og endorfíni fyrir sem besta slökun og framgang í fæðingu.
Í viku 2 uppgötvaru:
- Fæðingarhormónin: Hvernig þú eykur öflugasta framgangs drífandi og verkjastillandi hormón líkamans.
- Rólegt taugakerfi: Lærðu að þekkja muninn á sympatíska (streitu) og parasympatíska (slökunar) kerfinu og hvernig þú kemst í slökunarástand eftir þörfum.
- Öndun í fæðingu: Öndunaraðferðir sem hjálpa þér að vinna með hverri öldu og umbreyta ákefð aldanna í orku sem styður framgang fæðingarinnar.
- ÁVEIT ramminn: Verkfæri til að taka upplýstar ákvarðanir, sem gefur þér skýra rödd og sjálfstraust til að standa með óskum þínum, svo þú upplifir alltaf stjórn í fæðingar reynslunni.
Vika 3
Djúpslökun og líkamlegur undirbúningur fyrir mýkri fæðingu
Þjálfaðu líkamann í tafarlausri slökun og lærðu líkamlegar æfingar sem skapa jafnvægi í grindarholi fyrir fæðinguna.
Eitt er að hugsa um að vera róleg, annað er að vera róleg þegar mest á reynir.
Í þessari viku færðu hagnýt verkfæri til að þjálfa líkamann í djúpri slökun og breyta henni í vöðvaminni sem þú getur virkjað fljótt í fæðingu. Við færum fókusinn líka yfir á líkamlegan undirbúning fyrir fæðingu, fyrir sem bestan framgang í fæðingunni.
Í viku 3 uppgötvaru:
- Þrjár öndunaraðferðir: Náðu tökum á rólegri öndun, ölduöndun og fæðingaröndun svo þú vitir nákvæmlega hvaða öndun á að nota á hverju stigi fæðingar til að halda fókus og mýkt.
- Sjónsköpun fyrir mjúka opnun: Öflug sjónsköpun sem talar beint við líkamann og styður bæði slökun og líkamlegan framgang.
- Jafnvægi í grindarholi (Spinning Babies æfingar): Skildu hvernig styrkur, mýkt og teygjanleiki í vöðvum og bandvef hafa bein áhrif á framgang fæðingar og lærðu grunnatriðin sem styðja hagstæða stöðu barnsins.
- Inngrip í fæðingu: Skýr og hlutlaus yfirferð á algengum inngripum og verkjastillingum (eins og mænurótardeyfingu, gangsetningu o.fl.) svo þú getir tekið upplýstar ákvarðanir af sjálfstrausti.
Vika 4
MJÚK LENDING eftir fæðingu, tengsl, innsæi og upplýstar ákvarðanir
Undirbúðu mjúka lendingu eftir fæðingu
Í þessari viku förum við yfir fyrstu klukkustundirnar og vikurnar eftir fæðingu. Hún gefur þér öryggi til að vernda þessa heilögu byrjun, koma brjóstagjöfinni mjúklega af stað og skapa rólegt, endurnærandi „hreiður“ fyrir fjölskylduna.
Í viku 4 uppgötvaru:
- Vernd gullnu klukkustundarinnar: Lærðu 9 skrefin sem nýburinn tekur fyrstu klukkustundina eftir fæðingu, svo þú getir hámarkað tengslamyndun, hitastjórnun barnsins og gott upphaf brjóstagjafar.
- Raunveruleika fjórða þriðjungsins: Raunhæfar væntingar fyrir fyrstu 12 vikurnar eftir fæðingu, hvíld, næring, bataferli og tilfinningalegar breytingar nýs hlutverks, svo þú getir notið þessa tíma.
- Tengsl við barnið í móðurkviði: Einfaldar og öflugar tengsla æfingar sem dýpka sambandið við barnið þitt og leggja grunn að tilfinningalegu öryggi barnsins áður en það kemur í heiminn.
- Innsæi og öryggis listinn: Lærðu að þekkja mikilvægustu líkamlegu og andlegu merkin og hvenær rétt er að leita eftir aðstoð, svo þú upplifir öryggi og skýrleika í gegnum alla meðgönguna.
Frá stressi og óvissu í ró, tilhlökkun og trú á ferlið
Áður en ég tók þátt í Fæðing í Flæði var ég smá stressuð fyrir fæðingunni.
Eftir prógrammið finnst mér ég hafa undirbúið mig eins vel og ég get og hef þau tól sem ég þarf. Ég finn að einhverju leyti fyrir meiri tilhlökkun en áður og er orðin forvitin að sjá hvað verður.
Ég hef meiri trú á að allt gangi vel eða fari eins og það á að fara. Ég get náð ró og finnst auðveldara núna að treysta ferlinu.
Fæðing í Flæði eykur sjálfstraust og opnar hugann fyrir því hvað maður getur sjálfur gert til að líða sem best og hafa upplifunina sem besta. Þar er líka allskyns fróðleikur og verkfæri sem nýtast vel í undirbúningnum.
Frábært námskeið frá A–Ö og mjög heilbrigð nálgun á undirbúning fyrir fæðingu. Ég er þakklát fyrir að hafa tekið þátt í þessu. Myndi mæla með fyrir allar mínar vinkonur!“
- Erna Guðlaug
Miðað við allt sem þú ert búin að lesa hingað til ertu líklega farin að hugsa:
„Okay þetta hljómar rosa vel… hvað kostar þetta?“
Mér finnst mikilvægt að þessi undirbúningur sé aðgengilegur.
Allir foreldrar eiga skilið stuðning sem eflir þau, róar og styrkir.
Þess vegna er Fæðing í flæði fjárfesting upp á aðeins 34.900 kr.
Þetta er þitt tækifæri til að fjárfesta í þinni fæðingarupplifun.
Þú færð strax aðgang að námskeiðinu og hefur aðgang að öllu efninu í heilt ár, ásamt bónusum.
OG verkfærin sem þú lærir hér nýtast ekki bara í fæðingu. Þau fylgja þér áfram í lífinu, þegar þú þarft ná ró og mæta krefjandi augnablikum af mildi og styrk. Ég nota þessi verkfæri sjálf reglulega.
Af því að ég vil gera þér lífið eins auðvelt og hægt er bætast við þessir bónusar, hannaðir til að styðja þig enn betur í gegnum meðgöngu og fæðingu:
BóNUS #1
Fæðingar Vitinn: Þinn persónulegi fæðingarstuðningur á hljóðformi
Ímyndaðu þér að hafa rólega, hlýja og styrkjandi rödd með þér í gegnum alla fæðinguna, jafnvel á tímum þegar þú getur ekki hugsað eða ef allt verður yfirþyrmandi. Þetta er þín líflína að öryggi, ró og innra trausti á einni mögnuðustu stund lífsins.
Þessi fæðingarstuðnings upptaka er hönnuð til að:
- Hjálpa þér að halda ró og stöðugleika í kröftugum öldum, hvar sem þú fæðir
- Styðja við traust með mjúkri og öflugri leiðsögn
- Dýpka tengslin milli þín og barnsins þíns
Margar konur óttast að missa fókusinn eða fara í panik í fæðingu. Þessi upptaka er hugsuð sem nærandi nærvera sem hjálpar þér að anda, halda slökun og treysta ferlinu þegar mest á reynir. Hvort sem þú fæðir á sjúkrahúsi, heima eða á fæðingarheimili.
BóNUS #2
Handbók fæðingarfélagans
Handbók fæðingarfélagans inniheldur skref-fyrir-skref plan sem hjálpar fæðingarfélaganum að verða öruggur og styðjandi félagi í fæðingu.
Helstu atriði:
- Leiðbeiningar fyrir hvert stig fæðingarinnar
- Hvaða orð og aðgerðir raunverulega styðja
- Hagnýt verkfæri fyrir árangursríkan stuðning í fæðingu
Þú gengur inn í fæðinguna vitandi að fæðingarfélaginn er ekki bara á staðnum, heldur virkilega undirbúinn til að vera kletturinn þinn. Þessi handbók styður ykkur í að upplifa öryggi, tengsl og stuðning í gegnum alla fæðinguna.
BóNUS #3
Svefn nýbura 0-3 mánaða
Fyrstu mánuðirnir með nýfætt barn eru dásamlegir og geta líka verið krefjandi, ekki síst þegar kemur að svefninum. Það er svo margt sem er gott að vita um svefn nýbura og hvað þú getur gert til að leggja góðan grunn að svefni barnsins strax frá upphafi. Netnámskeiðið Nýburinn: 0–3 mánaða hjálpar þér að:
-
Skilja svefn nýbura og vita við hverju þú mátt búast fyrstu mánuðina
-
Móta heilbrigðar svefnvenjur sem leggja grunn að góðum svefni
-
Hafa raunhæfar væntingar til dag- og nætursvefns og næturgjafa
-
Hjálpa barninu þínu að sofa í vöggunni sinni á mildan og virðingarríkan hátt
Þetta námskeið er hannað til að gefa þér þekkingu, öryggi og traust á fyrstu mánuðunum með barninu þínu. Þú lærir að skilja svefnþarfir barnsins, koma til móts við það þar sem það er í þroska og skapa góðar svefnvenjur frá upphafi.
TÖKUM STUTTA SAMANTEKT!
Þegar þú ert tilbúin að færa þig frá ótta og kvíða yfir í djúpstætt innra öryggi, líkamlegt traust og ró þegar mest á reynir, þá er þetta allt sem bíður þín þegar þú verður með Fæðing í flæði í dag:
Kjarna prógrammið: Þinn leiðarvísir að fæðingu í flæði
Þetta er heildstæð, taugakerfis miðuð nálgun sem hjálpar þér að búa til fæðingarupplifun sem þú tekur virkan þátt í ekki eitthvað sem bara gerist fyrir þig.
- 4 vikna kjarni - aðgangur að efninu í ár
Skýr uppbygging sem undirbýr huga, líkama og taugakerfi fyrir fæðingu. Þú ferð í gegnum markvissa vinnu með undirmeðvitundina og færir undirbúninginn frá höfði niður í líkamann. - Stuðningur í rauntíma
Mættu á Zoom fundi eftir viku 2 og 4, þar sem við öndum og slökum saman, þú færð stuðning í rauntíma, svör við spurningum og hjálp við að innleiða æfingarnar. - Öndunar og slökunar verkfærakistan
Aðgangur og þjálfun í öndun og slökun. Sett upp í dagatal svo þú vitir hvað þú getir gert á hverjum degi.
ÞÚ FÆRÐ ÞESSA EINSTÖKU BÓNUSA FRÍTT MEÐ:
-
BÓNUS #1: Fæðingar Vitinn
Þinn persónulegi fæðingarstuðningur á hljóðformi. Hönnuð til að hjálpa þér að halda ró og stöðugleika í kröftugum öldum fæðingarinnar. - BÓNUS #2: Handbók fæðingarfélagans
Leiðarvísir sem breytir fæðingarfélaganum úr mögulega kvíðnum áhorfanda í sjálfsöruggan, jarðtengdan klett í fæðingu. -
BÓNUS #3: Svefn nýbura 0-3 mánaða
Þú lærir að skilja svefnþarfir barnsins, koma til móts við það þar sem það er í þroska og skapa góðar svefnvenjur frá upphafi.
Þú færð strax aðgang að Fæðing í flæði efninu viku fyrir viku og öllum bónusunum fyrir aðeins 34.900 kr í dag.
Smelltu hér fyrir neðan til að skrá þig og byrja að byggja upp djúpt innra öryggi og traust.
Já, ég vil upplifa fæðingu í flæði

Ég fékk fæðingar upplifunina sem ég þráði
„Fyrir námskeiðið var ég kvíðin fyrir fæðingunni. Fyrsta fæðing mín var ekki góð upplifun og og lærði ég í þeirri fæðingu hve andlegt ferðalag fæðing er. Ég vissi að fyrir þessa fæðingu þyrfti ég að vinna með hugann.
Eftir Fæðing í Flæði fann ég miklu meiri ró og minni fæðingarótta. Ég treysti ferlinu og vissi að allt yrði í lagi. Ég var miklu sjálfsöruggari gagnvart fæðingunni framundan.
Þegar á reyndi í fæðingunni, þrátt fyrir að allskonar gengi á og aðstæður yrðu krefjandi, var hugurinn alltaf í standi. Ég var fókuseruð, róleg og upplifði mig örugga og umlukna stuðningi og ást. Ég fékk fæðingar upplifunina sem ég þráði og hún var svo heilandi.
Námskeiðið gaf mér ómetanlegan andlegan undirbúning. Öndunin inn á 4 og út á 8 og hugleiðslurnar sem ég æfði daglega skiptu sköpum. Heilt yfir finnst mér Fæðing í Flæði frábært og ótrúlega valdeflandi námskeið sem hentar bæði konum sem eru að eignast sitt fyrsta barn og þeim sem hafa upplifað erfiða fæðingu áður. “
- Dýrleif
Skráðu þig í Fæðing í Flæði, án áhættu í 30 daga
Trygging
Ég vil gera þessa ákvörðun eins auðvelda fyrir þig og mögulegt er. Þess vegna færðu 100% endurgreiðslu tryggingu í 30 daga.
Ef þú ferð í gegnum Fæðing í flæði, leggur þig fram og gerir æfingarnar, en finnur ekki fyrir meiri ró, öryggi og trausti gagnvart fæðingunni, þá sendirðu einfaldlega póst á [email protected] og þú færð allt endurgreitt. Engin vandamál.
Þetta þýðir að þú getur skráð þig í dag, algjörlega áhættulaust, og fundið sjálf hvort Fæðing í flæði sé rétta nálgunin fyrir þig. Ef þetta er ekki rétti undirbúningurinn fyrir þig, þá er það allt í góðu, leiðir skiljast í fullri sátt 🤍
Og ef þú elskar þetta ekki af hvaða ástæðu sem er, þá færðu peninginn þinn til baka.
Áhættan er alfarið okkar, því við vitum að þetta virkar.