Undirbúðu þig fyrir fæðingu sem þú mætir af ró, trausti og tengingu við sjálfa þig, sama hvernig hún þróast
Fyrir verðandi foreldra upplifa meira öryggi og tilhlökkun fyrir fæðingunni vitandi að þau hafa verkfæri til að takast á við það sem kemur.
Það sem oft gleymist
Ég vona að amk hluti af þér sé spennt og þakklát.
En mögulega er annar hluti með einhvern hnút í maganum yfir fæðingunni.
Kannski ertu búin að lesa, hlusta, spyrja.
Kannski finnst þér þú alveg róleg en hugurinn fer á flug á kvöldin.
„Ég vil eiga góða fæðingu… en veit ég hvað til þarf?“
Flestur undirbúningur vinnur með meðvitaða hugann, sem er mikilvægt líka, en fæðing gerist í líkamanum og ósjálfráða taugakerfinu.
Þú getur vitað allt um fæðingu, en ef taugakerfið finnur ekki fyrir öryggi, þá spennistu ósjálfrátt upp og óttinn getur tekið yfir þegar á reynir.
Og það er mögulega það sem þú ert hrædd við...
Að frjósa. Að missa stjórnina. Að týna röddinni. Að glata sjálfri þér í reynslunni.
Fæðing í flæði er ólíkt hefðbundnum undirbúningi.
Þetta er vinna sem fer einu leveli dýpra og hjálpar líkamanum að upplifa öryggi og flæði.
Ímyndaðu þér að þú standir við sjávarmálið og horfir á öldurnar skella á ströndinni.
Margar konur reyna að byggja vegg gegn öldunum, að berjast, stjórna og standast.
En hvað ef þú gætir í staðinn lært að fljóta, anda og hreyfast með krafti hafsins?
Hvað ef fæðing er eitthvað sem þú mætir af öryggi og ró, ekki eitthvað sem gerist fyrir þig?
Velkomin í
Fæðing í flæði er 4 vikna fæðingarundirbúningur, hannaður til að undirbúa huga, líkama og taugakerfi fyrir fæðingu.
Þú lærir og æfir verkfæri sem hjálpa þér að vinna með líkamanum, finna aftur ró þegar ákefðin eykst og mæta því sem kemur af meira öryggi og trausti.
Þú hefur aðgang að öllu efninu í 1 ár, svo að þú getur farið í gegnum þetta á þínum hraða.
Þú þarft ekki að bæta löngum verkefnalista við meðgönguna því að stuttar, reglulegar æfingar skipta mestu máli.
Einu sinni í mánuði hittumst við á fjarfundi þar sem við öndum og slökum saman og þú getur fengið stuðning og svör við því sem liggur þér á hjarta.
Þetta prógram er heildstæð leiðsögn í því að mæta fæðingu af ró og innri styrk þegar á reynir, sama hvernig hún þróast eða hvar hún fer fram.
Hver er Hafdís
Ljósmóðir · Hypnobirthing-kennari · Móðir fjögurra barna · Svefnráðgjafi barna
Þegar ég eignaðist mitt fyrsta barn var ég sjálf orðin ljósmóðir og hélt að ég væri vel undirbúin. Fæðingin gekk vel á pappírum, en mér leið ekki vel í henni. Sama gerðist í þeirri næstu. Ég var upplýst, en ég var ekki andlega tilbúin.
Þegar ég gekk með tvíbura vissi ég að ég þyrfti að gera hlutina öðruvísi. Ég undirbjó hugann eins vel og líkamann. Sú fæðing varð allt önnur upplifun. Ég var róleg, tengd og fann innri styrk sem ég vissi að ég ætti til.
Í dag nýti ég 10 ára reynslu mína sem ljósmóðir, þekkingu á taugakerfinu og hypnobirthing til að hjálpa verðandi foreldrum að undirbúa sig á dýpra leveli, svo þau geti mætt fæðingunni af ró, tengingu og trausti á eigin getu.
Því hvernig þú upplifir fæðinguna er það sem þú tekur með þér heim.
Hér er það sem bíður þín inni í Fæðing í flæði
Vika 1
OPNAÐU á þinn innri styrk og skapaðu jákvæða sýn á fæðingu
Færðu þig frá ótta og efasemdum yfir í óstöðvandi sjálfstraust.
Ef þú hefur fundið fyrir hnút í maganum eða efasemdum í tengslum við fæðinguna, þá ert þú ekki ein. Þessi tilfinning spáir ekki fyrir um framtíðina, heldur er þetta forrit sem er í gangi í undirmeðvitundinni. Í viku 1 færðu dýpri skilning á því hvernig hugurinn virkar og tæki og tól til að skapa jákvæða sýn á fæðingu.
Í viku 1 uppgötvaru:
- Ísjaka-líkingin í fæðingu: Skildu muninn á meðvitund og undirmeðvitund og hvernig þú getur sett inn jákvæð skilaboð sem styðja þig í fæðingunni.
- Stóra sýnin: Skref-fyrir-skref ferli til að skapa lifandi og skýra mynd af draumafæðingunni þinni, svo sannfærandi að hugurinn byrjar strax að vinna að því að gera hana að veruleika.
- Hamlandi viðhorf: Skoðaðu hamlandi viðhorf og sögur sem halda aftur af þér og lærðu verkfæri til að móta ný, valdeflandi viðhorf sem styðja þína drauma fæðingu.
Vika 2
Masteraðu lífeðlisfræði flæðis í fæðingu, líkaminn er gerður fyrir þetta
Lærðu að styðja við hormóna- og taugakerfið fyrir auðveldari fæðingu.
Í þessari viku skoðum við lífeðlisfræðina á bak við fæðingu, sem gefur þér djúpan skilning á því sem er að gerast í líkamanum. Þú lærir að styðja við fæðingarhormónin, svo að allt verði löðrandi í oxýtósíni og endorfíni fyrir sem besta slökun og framgang í fæðingu.
Í viku 2 uppgötvaru:
- Fæðingarhormónin: Hvernig þú eykur öflugasta framgangs drífandi og verkjastillandi hormón líkamans.
- Rólegt taugakerfi: Lærðu að þekkja muninn á sympatíska (streitu) og parasympatíska (slökunar) kerfinu og hvernig þú kemst í slökunarástand eftir þörfum.
- Öndun í fæðingu: Öndunaraðferðir sem hjálpa þér að vinna með hverri öldu og umbreyta ákefð aldanna í orku sem styður framgang fæðingarinnar.
- ÁVEIT ramminn: Verkfæri til að taka upplýstar ákvarðanir, sem gefur þér skýra rödd og sjálfstraust til að standa með óskum þínum, svo þú upplifir alltaf stjórn í fæðingar reynslunni.
Vika 3
Djúpslökun og líkamlegur undirbúningur fyrir mýkri fæðingu
Þjálfaðu líkamann í tafarlausri slökun og lærðu líkamlegar æfingar sem skapa rými, jafnvægi og orku fyrir fæðinguna.
Eitt er að hugsa um að vera róleg, annað er að vera róleg þegar mest á reynir.
Í þessari viku færðu hagnýt verkfæri til að þjálfa líkamann í djúpri slökun og breyta henni í vöðvaminni sem þú getur virkjað fljótt í fæðingu. Við færum fókusinn líka yfir á líkamlegan undirbúning fyrir fæðingu, fyrir sem bestan framgang í fæðingunni.
Í viku 3 uppgötvaru:
- Þrjár öndunaraðferðir: Náðu tökum á rólegri öndun, ölduöndun og fæðingaröndun svo þú vitir nákvæmlega hvaða öndun á að nota á hverju stigi fæðingar til að halda fókus og mýkt.
- Sjónsköpun fyrir mjúka opnun: Öflug sjónsköpun sem talar beint við líkamann og styður bæði slökun og framgang.
- Jafnvægi í grindarholi (innblásið af Spinning Babies): Skildu hvernig styrkur, mýkt og teygjanleiki í vöðvum og bandvef hafa bein áhrif á framgang fæðingar og lærðu grunnatriðin sem styðja hagstæða stöðu barnsins.
- Inngrip í fæðingu: Skýr og hlutlaus yfirferð á algengum inngripum og verkjastillingum (eins og mænurótardeyfingu, gangsetningu o.fl.) svo þú getir tekið upplýstar ákvarðanir af sjálfstrausti.
Vika 4
MJÚK LENDING eftir fæðingu, tengsl, innsæi og upplýstar ákvarðanir
Undirbúðu mjúka lendingu eftir fæðingu
Í þessari viku förum við yfir fyrstu klukkustundirnar og vikurnar eftir fæðingu. Hún gefur þér öryggi til að vernda þessa heilögu byrjun, koma brjóstagjöfinni mjúklega af stað og skapa rólegt, endurnærandi „hreiður“ fyrir fjölskylduna.
Í viku 4 uppgötvaru:
- Vernd gullnu klukkustundarinnar: Lærðu 9 skrefin sem nýburinn tekur fyrstu klukkustundina eftir fæðingu, svo þú getir hámarkað tengslamyndun, hitastjórnun barnsins og gott upphaf brjóstagjafar.
- Raunveruleika fjórða þriðjungsins: Raunhæfar væntingar fyrir fyrstu 12 vikurnar eftir fæðingu, hvíld, næring, bataferli og tilfinningalegar breytingar nýs hlutverks, svo þú getir notið þessa tíma án pressu.
- Tengsl við barnið í móðurkviði: Einfaldar og öflugar tengslagaræfingar sem dýpka sambandið við barnið þitt og leggja grunn að tilfinningalegu öryggi barnsins áður en það kemur í heiminn.
- Innsæi og öryggis listinn: Lærðu að þekkja mikilvægustu líkamlegu og andlegu merkin og hvenær rétt er að leita eftir aðstoð, svo þú upplifir öryggi og skýrleika í gegnum alla meðgönguna.
Frá stressi og óvissu í ró, tilhlökkun og trú á ferlið
Fæðing í Flæði eykur sjálfstraust og opnar hugann fyrir því hvað maður getur sjálfur gert til að líða sem best og hafa upplifunina sem besta. Þar er líka allskyns fróðleikur og verkfæri sem nýtast vel í undirbúningnum.
Frábært námskeið frá A–Ö og mjög heilbrigð nálgun á undirbúning fyrir fæðingu. Ég er þakklát fyrir að hafa tekið þátt í þessu. Myndi mæla með fyrir allar mínar vinkonur!“
- Erna Guðlaug
Miðað við allt sem þú ert búin að lesa hingað til ertu kannski farin að hugsa:
„Okay þetta hljómar vel… hvað kostar þetta?“
Mér finnst mikilvægt að þessi undirbúningur sé aðgengilegur.
Allir foreldrar eiga skilið stuðning sem eflir þau, róar og styrkir.
Þess vegna er Fæðing í flæði fjárfesting upp á aðeins 34.900 kr.
Þetta er þitt tækifæri til að fjárfesta í þinni fæðingarupplifun.
Þú færð strax aðgang að námskeiðinu og hefur aðgang að öllu efninu í heilt ár, ásamt bónusum og mánaðarlegum Fæðing í Flæði fjar samverustundum.
OG verkfærin sem þú lærir hér nýtast ekki bara í fæðingu. Þau fylgja þér áfram í lífinu, þegar þú þarft ná ró og mæta krefjandi augnablikum af mildi og styrk. Ég nota þessi verkfæri sjálf reglulega.
Af því að ég vil gera þér lífið eins auðvelt og hægt er bætast við þessir bónusar, hannaðir til að styðja þig enn betur í gegnum fæðinguna:
BóNUS #1
Fæðingar Vitinn: Þinn persónulegi fæðingarstuðningur á hljóðformi
Ímyndaðu þér að hafa rólega, hlýja og styrkjandi rödd með þér í gegnum alla fæðinguna, jafnvel á tímum þegar þú getur ekki hugsað eða ef allt verður yfirþyrmandi. Þetta er þín líflína að öryggi, ró og innra trausti á einni mögnuðustu stund lífsins.
Þessi fæðingarstuðnings upptaka er hönnuð til að:
- Hjálpa þér að halda ró og stöðugleika í kröftugum öldum, hvar sem þú fæðir.
- Styðja við traust með mjúkri og öflugri leiðsögn
- Dýpka tengslin milli þín og barnsins þíns
Margar konur óttast að missa fókusinn eða fara í panik í fæðingu. Þessi upptaka er hugsuð sem nærandi nærvera sem hjálpar þér að anda, halda slökun og treysta ferlinu þegar mest á reynir. Hvort sem þú fæðir á sjúkrahúsi, heima eða á fæðingarheimili.
BóNUS #2
Handbók fæðingarfélagans
Handbók fæðingarfélagans inniheldur skref-fyrir-skref plan sem hjálpar fæðingarfélaganum að verða öruggur og styðjandi félagi í fæðingu.
Helstu atriði:
- Leiðbeiningar fyrir hvert stig fæðingarinnar
- Hvaða orð og aðgerðir raunverulega styðja
- Hagnýt verkfæri fyrir árangursríkan stuðning í fæðingu
Þú gengur inn í fæðinguna vitandi að fæðingarfélaginn er ekki bara á staðnum, heldur virkilega undirbúinn til að vera kletturinn þinn. Þessi handbók styður ykkur í að upplifa öryggi, tengsl og stuðning í gegnum alla fæðinguna.
Þú getur ekki stjórnað fæðingunni en þú getur undirbúið hvernig þú mætir henni
„Ég vissi að ég þyrfti að vinna með hugann fyrir þessa fæðingu, því síðasta fæðing mín var mjög hröð og krefjandi. Fæðing í Flæði hjálpaði mér að ná miklu meiri ró, bæði í daglega lífinu og núna í lok meðgöngu með tvö börn heima.
Ég er mun meðvitaðri um að æfa mig og hlusta á líkamann og ég finn að hugurinn er miklu slakari. Nú er ég bara orðin spennt fyrir fæðingunni! Ég veit að ég mun geta tekið því sem kemur, hvernig sem aðstæður verða.
Ég fékk góða þekkingu og upplýsingar, og mér finnst þetta svo valdeflandi, að vita hvernig ég get skapað bestu mögulegu stjórn og líðan í krefjandi aðstæðum. Fyrir mig er hugurinn stærsta tólið í fæðingu, hann er næstum það eina sem við getum stjórnað í þessum aðstæðum og þegar hugurinn er rólegur og á góðum stað, þá kemur líkaminn líka með.“
- Melkorka Rut
TÖKUM STUTTA SAMANTEKT!
Þegar þú ert tilbúin að færa þig frá ótta og kvíða yfir í djúpstætt innra öryggi, líkamlegt traust og ró þegar mest á reynir, þá er þetta allt sem bíður þín í Fæðing í flæði í dag:
Kjarna prógrammið: Þinn leiðarvísir að fæðingu í flæði
Þetta er heildstæð, taugakerfis miðuð nálgun sem hjálpar þér að stuðla að fæðingarupplifun sem þú tekur virkan þátt í ekki eitthvað sem bara gerist fyrir þig.
- 4 vikna kjarni - aðgangur að öllu efni í 1 ár
Skýr uppbygging sem undirbýr huga, líkama og taugakerfi fyrir fæðingu. Þú ferð í gegnum markvissa vinnu með undirmeðvitundina og færir undirbúninginn frá höfði niður í líkamann. - Stuðningur og samvera
Mættu á mánaðarlega Zoom samveru, þar sem við öndum og slökum saman, þú færð stuðning í rauntíma, svör við spurningum og hjálp við að innleiða æfingarnar. Árs aðgangur.
ÞÚ FÆRÐ ÞESSA EINSTÖKU BÓNUSA FRÍTT MEÐ:
-
BÓNUS #1: Fæðingar Vitinn
Þinn persónulegi fæðingarstuðningur á hljóðformi. Hannað til að hjálpa þér að halda ró í kröftugum öldum fæðingarinnar. - BÓNUS #2: Handbók fæðingarfélagans
Leiðarvísir sem styður fæðingarfélagann í að vera sjálfsöruggur, jarðtengdur klettur í fæðingunni.
Þú færð strax aðgang að Fæðing í flæði efninu viku fyrir viku ásamt bónusum fyrir aðeins 34.900 kr í dag.
Smelltu hér fyrir neðan til að skrá þig og byrja að byggja upp innra öryggi og traust.
Já, ég vil upplifa fæðingu í flæði

Ég fékk fæðingar upplifunina sem ég þráði
„Fyrir námskeiðið var ég kvíðin fyrir fæðingunni. Fyrsta fæðing mín var ekki góð upplifun og lærði ég í þeirri fæðingu hve andlegt ferðalag fæðing er. Ég vissi að fyrir þessa fæðingu þyrfti ég að vinna með hugann.
Eftir Fæðing í Flæði fann ég miklu meiri ró og minni fæðingarótta. Ég treysti ferlinu og vissi að allt yrði í lagi. Ég var miklu sjálfsöruggari gagnvart fæðingunni framundan.
Þegar á reyndi í fæðingunni, þrátt fyrir að allskonar gengi á og aðstæður yrðu krefjandi, var hugurinn alltaf í standi. Ég var fókuseruð, róleg og upplifði mig örugga og umlukna stuðningi og ást. Ég fékk fæðingar upplifunina sem ég þráði og hún var svo heilandi.
Námskeiðið gaf mér ómetanlegan andlegan undirbúning. Öndunin inn á 4 og út á 8 og hugleiðslurnar sem ég æfði daglega skiptu sköpum. Heilt yfir finnst mér Fæðing í Flæði frábært og ótrúlega valdeflandi námskeið sem hentar bæði konum sem eru að eignast sitt fyrsta barn og þeim sem hafa upplifað erfiða fæðingu áður. “
- Dýrleif
Skráðu þig í Fæðing í Flæði, án áhættu í 30 daga
Ég vil gera þessa ákvörðun eins auðvelda fyrir þig og mögulegt er. Þess vegna færðu 100% endurgreiðslu tryggingu í 30 daga.
Ef þú ferð í gegnum Fæðing í flæði, leggur þig fram og gerir æfingarnar, en finnur ekki fyrir meiri ró, öryggi og trausti gagnvart fæðingunni, þá sendirðu einfaldlega póst á [email protected] og þú færð allt endurgreitt. Engin vandamál.
Þetta þýðir að þú getur skráð þig í dag, algjörlega áhættulaust, og fundið sjálf hvort Fæðing í flæði sé rétta nálgunin fyrir þig. Ef þetta er ekki rétti undirbúningurinn fyrir þig, þá er það allt í góðu, leiðir skiljast í fullri sátt 🤍
Og ef þú elskar þetta ekki af hvaða ástæðu sem er, þá færðu peninginn þinn til baka.
Áhættan er alfarið okkar.