Kannski kannast þú við þetta
Hluti af þér hlakkar til. Þú ert loksins að fara að hitta barnið þitt.
Á sama tíma er annar hluti sem finnur fyrir kvíða eða óvissu, eins og þú hafir enga stjórn á því sem bíður þín.
„Hvernig verður þetta?“
„Mun ég ráða við öldurnar?“
„Hvað ef þetta verður eins og síðast, eða erfiðara?“
„Hvað ef ég missi stjórn?“
Það er eðlilegt að finna fyrir þessu. Það er eðlilegt að hræðast verki og finnast óvissan óþægileg.
Þegar við skoðum þetta nánar er þetta yfirleitt spurning um traust.
Traust á sjálfri þér og líkamanum þínum. Traust á því að þú getir farið í gegnum þetta og gengið stolt frá reynslunni. Traust á því að þú týnir ekki sjálfri þér í ferlinu. Það er nákvæmlega það sem við vinnum með á fyrirlestrinum.
Hittu fyrirlesarann
Hæ, ég er Hafdís
Ljósmóðir · Hypnobirthing-kennari · Móðir fjögurra barna · Svefnráðgjafi barna
Þegar ég eignaðist mitt fyrsta barn var ég sjálf orðin ljósmóðir og hélt að ég væri vel undirbúin. Fæðingin gekk vel á pappírum, en mér leið ekki vel í henni. Sama gerðist í þeirri næstu. Ég var upplýst, en ég var ekki andlega tilbúin.
Þegar ég gekk með tvíbura vissi ég að ég þyrfti að gera hlutina öðruvísi. Ég undirbjó hugann eins vel og líkamann. Sú fæðing varð allt önnur upplifun. Ég var róleg, tengd og fann innri styrk sem ég vissi að ég ætti til.
Í dag hjálpa ég verðandi foreldrum að undirbúa sig á dýpra leveli, svo þau geti mætt fæðingunni með ró, tengingu og trausti á eigin getu. Því hvernig þú upplifir fæðinguna er það sem þú tekur með þér heim.
Hvað segja konur sem ég hef unnið með?
Þeirra reynsla
Stórt takk fyrir að undirbúa mig svona vel fyrir magnaðasta móment og upplifun lífs míns 🥰 Í raun trúi ég þessu ekki ennþá, að þetta sé búið? En sturlað var það! TAKK ❤️
Kristín María
Kom mér á óvart hvað prógrammið hafði virkilega jákvæð áhrif á hugarfar og trú á eigin getu. Fann svo sterkt að ég gæti treyst líkamanum, barninu og þessu náttúrulega ferli. Fór nánast áhyggjulaus inn í fæðinguna.
Halldóra
Algengar spurningar
Hvað kostar fyrirlesturinn?
Ég er búin að fara á fæðingarnámskeið. Er þetta öðruvísi?
Hvenær á meðgöngunni hentar fyrirlesturinn?
Hentar þetta þó ég viti ekki hvar eða hvernig ég vil fæða?
Þú veist örugglega að…
Andlegur og líkamlegur undirbúningur fyrir fæðingu hefur jákvæð áhrif á þig og barnið þitt. En hann nær dýpra. Hann gefur þér tækifæri til að…
Tengjast frumkrafti lífsins
Að muna að líkami þinn veit leiðina. Þú mátt slaka á og leyfa honum að leiða þig í gegnum fæðinguna.
Upplifa fæðinguna andlega tengd
Þetta er andleg upplifun þar sem þú mætir eigin styrk, fegurð og mýkt.
Finna sjálfa þig í öryggi og krafti
Að losa þig við ótta og spennu, finna frið í líkamanum og treysta því sem er þegar til staðar innra með þér.
Þú getur átt jákvæða og styrkjandi fæðingu
Það byrjar á rólegu taugakerfi og trausti á sjálfri þér. Komdu og horfðu á fyrirlesturinn, það er fyrsta skrefið.
Sofa Borða Elska · Fæðing í Flæði
Fæðingarundirbúningur sem vinnur með taugakerfið.